Ferill 84. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Nr. 12/150.

Þingskjal 608  —  84. mál.


Þingsályktun

um óháða úttekt á Landeyjahöfn.


    Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að láta hefja nú þegar óháða úttekt á Landeyjahöfn í samræmi við samgönguáætlun fyrir árin 2019–2033 og fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019–2023 og að henni verði lokið eigi síðar en 31. ágúst 2020.

Samþykkt á Alþingi 2. desember 2019.